Erstellt von Haraldur Hringsson
vor etwa 8 Jahre
|
||
1. (3%) Aðeins ein fullyrðinganna að neðan er rétt:
a. Mikið af starfi raunhyggjumanna fer í að finna orsök og afleiðingu og
orsakasamhengi milli frumbreyta og fylgibreyta.
b. Raunhyggja (positivism) byggir á þeirri forsendu að rannsóknir á mannlegu
atferli fari fram með sama hætti og hugvísindarannsóknir.
c. Fyrirbærafræði (phenomenology) snýst um að greina orsök og afleiðingu í
mannlegri hegðun.
d. Rannsóknir innan kvennafræða (feminism research) eru nær
undantekningalaust hagnýtar.
2. (3%) Þegar við tölum um hagnýtar rannsóknir og grunnrannsóknir (applied and
basic research) byggir sú skipting á...
a. Þeim röksemdafærslum sem beitt er.
b. Niðurstöðunum.
c. Tilgangi rannsóknarinnar.
d. Því hvernig rannsóknarferlið er.
3. (3%) Aðgerðabinding (operationalization) er:
a. Nauðsynleg forsenda hugtakaskilgreiningar (definition of concept).
b. Binding aðgerðar við tiltekna aðferð.
c. Að koma hugtaki á mælanlegt form (making a concept measurable).
d. Binding aðgerða við eflingu lýðræðislegra stjórnarhátta
4. (3%) Í fyrirlestri þann 7. október var sagt frá því þegar Harry Truman vann
forsetakosningarnar í USA 1948 og að daginn eftir hafi blaðið Chicago Daily
Tribune greint frá sigri Thomas Dewey á Truman. Blaðið hafði farið í prentun
áður en talningu lauk og það byggði fréttina á könnun sem gerð hafði verið
skömmu fyrir kosningar og benti til sigurs Dewey. Könnunin hafði þann ágalla
að þeir sem náðist í voru í mun meira mæli stuðningsmenn Dewey.
Meginástæða þessara hrapallegu mistaka var:
a. Of lítið úrtak.
b. Tilviljanabundin skekkja.
c. Kerfisbundin skekkja.
d. Ranglega var unnið úr könnuninni.
5. (3%) Þegar rannsakandi leitast við að færa frá fáum einstökum tilvikum til
almennrar reglu þá styðst viðkomandi við aðferðir:
a. Afleiðslu (deductive).
b. Alhæfingar (generalisation).
c. Ályktunartölfræði (inferential statistics).
d. Aðleiðslu (inductive).
6. (3%) Flokkur sem hyggst bjóða fram til Alþingis vill upplýsingar um væntanlegt
fylgi sitt og fær nýútskrifaðan nemanda frá Háskólanum á Akureyri til að
framkvæma fyrir sig könnun. Upphafleg hugmynd flokksfólks er að hringt verði í
350 mögulega kjósendur en sá nýútskrifaði leggur til að hringt verði í mun fleiri
eða alls 1000 kjósendur. Hvers vegna leggur hann þetta til?
a. Til að minnka kerfisbundna skekkju (system error) í niðurstöðum.
b. Til að minnka tilviljunarbundna skekkju (random error) í niðurstöðum.
c. Til að minnka bæði kerfisbundnar og tilviljunarbundnar skekkjur.
d. Til að hlutfall kjósenda sem könnunin nær til sé það stórt að könnunin sé
marktæk.
7. (4%) Vísindamaður rannsakar áhrif aldurs á kosningaþátttöku. Hann kemst að
því að kosingaþátttaka yngra fólks, sérstaklega undir þrítugu er mun lakari en
annarra aldurshópa. Þá kemst hann einnig að því að þessi munur á
aldurshópum er enn meiri utan Höfuðborgarsvæðisins. Í þessu dæmi eru:
a. Aldur óháð-/frumbreyta (independent variable) og búseta háð-/fylgibreyta
(dependent variable).
b. Kjörsókn óháð-/frumbreyta og aldur háð-/fylgibreyta.
c. Kjörsókn óháð-/frumbreyta og búseta háð-/fylgibreyta.
d. Aldur óháð-/frumbreyta og kjörsókn háð-/fylgibreyta.
8. (3%) Ein fullyrðinganna að neðan er röng:
a. Ávallt skal hafa heiti töflu ofan við töfluna.
b. Þegar greint er frá innihaldi viðtala í texta á að leggja áherslu á að endursegja
og nota beinar tilvitnanir sparlega.
c. Kökurit eru fyrst og fremst hentug til að bera saman hópa.
d. Ein fullyrðinganna þriggja að ofan er röng.
9. (3%) Það sem spurt er um segir til um stöðugleika útkomu frá einni mælingu til
annarrar. Ef eiginleiki þess sem er mælt breytist ekki en niðurstaða
endurtekinnar mælingar er talsvert önnur er mælingin...
a. Réttmæt.
b. Áreiðanleg.
c. Óréttmæt.
d. Óáreiðanleg.
10. (3%) Þessi tegund rannsókna er notuð þegar þekking á viðfangsefninu er af
mjög skornum skammti. Hér er verið að lýsa:
a. Leitandi rannsókn (explorative research).
b. Ályktandi rannsókn (evaluation research).
c. Hagnýt rannsókn (applied research).
d. Þreifandi rannsókn (searching research).
11. (3%) Aðeins ein eftirfarandi fjögurra heimildaskrárfærslna er rétt skv. APAstaðlinum.
Hver? (Athugið að það sem venjulega er skáletrað er haft
undirstrikað hér)
a. Rúnar Vilhjálmsson. (2001). Hverjir leita til hjúkrunarfræðinga í
heilsugæslunni? Niðurstöður úr nýlegri heilbrigðiskönnun meðal Íslendinga. Í
Herdís Sveinsdóttir og Ari Nyysti (ritstjórar), Framtíðarsýn innan
heilsugæsluhjúkrunar (bls. 101-122). Háskólaútgáfan í Reykjavík.
b. Rúnar Vilhjálmsson. (2001). Hverjir leita til hjúkrunarfræðinga í
heilsugæslunni? Niðurstöður úr nýlegri heilbrigðiskönnun meðal Íslendinga. Í
Herdís Sveinsdóttir og Ari Nyysti (ritstjórar), Framtíðarsýn innan
heilsugæsluhjúkrunar. Reykjavík: Háskólaútgáfan (bls. 101-122).
c. Rúnar Vilhjálmsson. (2001). Hverjir leita til hjúkrunarfræðinga í
heilsugæslunni? Niðurstöður úr nýlegri heilbrigðiskönnun meðal Íslendinga. Í
Herdís Sveinsdóttir og Ari Nyysti (ritstjórar), Framtíðarsýn innan
heilsugæsluhjúkrunar (bls. 101-122). Reykjavík: Háskólaútgáfan.
d. Rúnar Vilhjálmsson. (2001). Hverjir leita til hjúkrunarfræðinga í
heilsugæslunni? Ni
12. (3%) Aðeins ein eftirfarandi fjögurra heimildaskrárfærslna er rétt skv. APAstaðlinum.
Hver? (Athugið að það sem venjulega er skáletrað er haft
undirstrikað hér)
a. McGrow, B. (2004). Erfðir og líftækni (Marta Konráðsdóttir þýddi).
(Upphaflega gefið út 2002). Reykjavík: Mál og menning.
b. McGrow, B. (2004). (Upphaflega gefið út 2002). Erfðir og líftækni (Marta
Konráðsdóttir þýddi). Reykjavík: Mál og menning.
c. McGrow, Boris. (2004). Erfðir og líftækni (Marta Konráðsdóttir þýddi).
Reykjavík: Mál og menning. (Upphaflega gefið út 2002).
d. McGrow, B. (2004). Erfðir og líftækni (Marta Konráðsdóttir þýddi).
Reykjavík: Mál og menning. (Upphaflega gefið út 2002).
13. (3%) Aðeins ein eftirfarandi fjögurra heimildaskrárfærslna er rétt skv. APAstaðlinum.
Hver? (Athugið að það sem venjulega er skáletrað er haft
undirstrikað hér).
a. Lerner, J.S., Han, S. og Keltner, D. (2007). Feelings and consumer decision
making: Extending the appraisal-tendency framework. Journal of Consumer
Psychology, 17(3), 184-187.
b. Lerner, J.S., Han, S. og Keltner, D. (2007). Feelings and consumer decision
making: Extending the appraisal-tendency framework. Journal of Consumer
Psychology, 17(3), 184-187.
c. Lerner, John S., Han, Susan og Keltner, David. (2007). Feelings and
consumer decision making: Extending the appraisal-tendency framework.
Journal of Consumer Psychology, 17(3), 184-187.
d. Lerner, J.S., Han, S. og Keltner, D. (2007). Feelings and consumer decision
making: Extending the appraisal-tendency framework. Journal of Consumer
Psychology, 17(3), bls. 184-187.
14. (3%) Hvað einkennir ritrýni á sviði vísinda og fræða? Hvað af eftirfarandi
lýsingum á best við?
a. Í ritrýndu verki hefur aðeins verið tryggt að allar vísanir til heimilda séu
réttar.
b. Ritrýnt verk er almennt ekki ritstýrt.
c. Ritstýrt verk er alltaf ritrýnt af sérfræðingum.
d. Ritrýnt verk er ritrýnt af ritrýnum og ritstýrt af ritstjóra/ritstjórum.
15. (3%) Í hvaða tilfellum er heimilt að nota efni af netinu (e. the internet) við
ritgerðarsmíð án þess að vísa til heimildar?
a. Þegar þú umorðar efnið sem þú tekur af netinu í eigin ritgerð.
b. Þegar þú tekur aðeins örstutta textabúta af netinu og setur í eigin ritgerð.
c. Þegar það sem þú tekur af netinu fellur undir almenna þekkingu.
d. Þegar efnið sem þú tekur af netinu hefur birst á mörgum mismunandi
vefsíðum.
16. (3%) Rannsóknarskýrsla skiptist niður í eftirfarandi meginkafla:
a. Formáli, Meginmál (sem skiptist gjarnan upp í undirkafla), Samantekt.
b. Inngangur, Aðferðir, Niðurstöður, Umræður.
c. Inngangur, Rannsóknin, Niðurstöður.
d. Engin þessara lýsinga er rétt.
17. (3%) Fræðafólk sem styðst við eigindlegar rannsóknir vinnur:
a. Með stór úrtök.
b. Eingöngu með reynslu kvenna.
c. Með lítil úrtök.
d. Eingöngu með fólki á aldrinum 18-65 ára.
18. (3%) Eigindlegar rannsóknir byggja á fyrirbærafræðilegri nálgun en í slíkum
rannsóknum telst:
a. Áreiðanleiki takmarkaður og réttmæti takmarkað.
b. Áreiðanleiki mikill og réttmæti mikið.
c. Áreiðanleiki mikill en réttmæti takmarkað.
d. Áreiðanleiki takmarkaður en réttmæti mikið.
19. (3%) Þátttökuathugun (participant observation) er rannsókn:
a. Sem framkvæmd er með spurningalistakönnunum.
b. Sem framkvæmd er í sem náttúrulegustu umhverfi þátttakenda.
c. Sem framkvæmd er í tilraunstofum.
d. Sem framkvæmd er með þátttöku dýra.
20. (3%) Karl Popper skilgreindi mun á vísindum og gervivísindum út frá…
a. Getgátum sínum.
b. Hrekjanleika kenninganna.
c. Tilvist fyrirbæra.
d. Marx og Freud.
21. (3%) Er vísindasamfélagið skv. Vilhjálmi Árnasyni undanþegið siðferðiskröfum?
a. Já, vegna þess að ábati fyrir samfélagið af vísindarannsóknum er svo mikið að
ekki þarf að velta fyrir sér siðferðilegum álitamálum.
b. Já, vegna þess að vísindamenn leita sannleikans en siðfræðin byggist á smekk
hvers og eins.
c. Nei, vegna þess að nauðsynlegt er að ræða hvers kyns siðferðileg álitamál og
byggja skoðun sína á rökum fyrir þeirri niðurstöðu sem valin er.
d. Liðir a, b og c eru rangir.
22. (3%) Hvaða fjórar reglur liggja til grundvallar í siðfræði rannsókna?
a. Sjálfræðisreglan, Skaðleysisreglan, Velgjörðarreglan og Réttlætisreglan.
b. Skaðsemisreglan, Velferðarreglan, Velgjörðarreglan og Réttlætisreglan.
c. Lýðræðisreglan, Skaðsemisreglan, Velgjörðarreglan og Réttlætisreglan.
d. Ekkert ofangreint.
1. (9%) Við mat á því hvað sé góð rannsóknarspurning (research question) er í bók
Schutt lagt til að stuðst sé við þrennskonar viðmið (criteria). Hver eru þau?
(8%) Hvernig má skilgreina samanburðarrannsóknir (comparative research) og
megintilgang slíkra rannsókna? Nefndu dæmi um slíkar rannsóknir.
3. (8%) Hvað eru hálfgildingstilraunir (e. quasi-experiments) og hvenær eru þær
notaðar frekar en sannar tilraunir? Gerið líka grein fyrir tveimur helstu gerðum
hálfgildingstilrauna Munið að rökstyðja og gefa dæmi.
4. (8%) Útskýrðu muninn á frásagnarsagnfræði og gagnrýninni félagsvísinda-sinnaðri
sagnfræði og taktu dæmi. Hver er ögrun póstmódernismans við þessar gerðir
sagnfræði?