Samkvæmt rannsókn þeirra Wolfgangs Edelsteins og Sigurjóns Björnssonar birtist félagslegur og kynbundinn munur með eftirfarandi hætti í íslensku skólakerfi á 7. áratug 20. aldar?
Stelpum í lægsta þjóðfélagsþrepinu gekk betur á prófum en strákum í sama þjóðfélagsþrepi
Munur á námsárangri milli þjóðfélagshópa minnkaði eftir því sem leið á skólagönguna
Stelpum hefur alltaf gengið betur en strákum í skóla
Í öllum þjóðfélagshópum gekk strákum betur á prófum en stelpum
Hver eftirfarandi fullyrðinga á við um menntastefnu Durkheims?
Í skólum á að leggja áherslu á læsi, stærðfræði og náttúrufræði
Skólum ber að leggja áherslu á skapandi listir
Mikilvægt er að börn læri erlend tungumál í skólum
Í skólum á að leggja áherslu á siðrænt uppeldi
Ólíkir möguleikar kynjanna til náms hér á landi á fyrri hluta 19. aldar birtust m.a. í því að:
Til undantekninga heyrði að konur kynnu kverið
Tilskipanir um fræðslu barna gerðu ekki ráð afyrir að stúlkur lærðu að lesa
Skriftarkunnátta var lakari meðal stúlkna en drengja
Fermingarundirbúningur drengja var lakari en stúlkna
Hver eftirtalinna fullyrðinga um fræðslulögin 1907 á við rök að styðjast?
Með fræðslulögunum 1907 urðu börn á aldrinum 7-14 ára skólaskyld
Áfram var mikill munur á lengd skóla í sveit og þéttbýli
Lög fræðslu barna frá 1907 leiddu til þess að á örfáum árum voru skólabyggingar reistar í öllum fræðsluhéruðum
Grundvallarbreyting varð á fræðslufyrirkomulagi í Reykjavík með lögunum 1907
Framhaldsdeildir gagnfræðastigsins voru stofnaðar:
Á 7. áratugnum til að létta á aðsókninni að menntaskóla- og kennaranámi
Á 5. áratugnum til þess að jafna metin milli bóknáms og verknáms
Á 5. áratugnum til þess að brúa bilið frá unglingastigi skyldunámsins yfir á menntaskóla- og sérskólastigið
Á 7. áratugnum til að beina stúlkum í hagnýtara nám frekar en nám til stúdentsprófs
Hver eftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningum Durkheims um vélræna og lífræna samheldni?
Vélræn samheldni var ráðandi á tímum iðnaðarsamfélagsins
Vélræn samheldni olli siðrofi í samfélaginu
Í lífrænni samheldni felst að við erum í lifandi samskiptum við nágranna og þá sem við kaupum þjónustu af
Menntun og uppeldi gegna lykilhlutveki í að tryggja lífræna samheldni í samfélaginu
Félagsfræðingurinn Emile Durkheim lagði áherslu á að samheldni í nútíma samfélagi yrði best tryggð með:
Góðum vináttutengslum í heilbrigðum leikjum með öðrum börnum
Öflugu skólastarfi þar sem kennari er góð fyrirmynd
Öflugu trúarlegu uppeldi með áherslu á heilaga ritningu
Aga og reglusemi í skólastarfi
Greining á kyngervum snýst um að:
Skoða kúgun karla á konum
Mæla muninn á körlum og konum
Setja líf kvenna í sögulegt og félagslegt samhengi
Skoða ólíkar myndir karlmennsku og kvenleika
Aukinnar veraldarvæðingar (afhelgunar/sekulariseringar) verður vart í skólamálum hér á landi á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. Þetta birtist meðal annars í eftirfarandi:
Með lögunum 1880 var bannað að prestar sætu í fræðslunefndum á Íslandi
Um aldamótin 1900 voru skilin milli kirkju og mun skarpari á Norðurlöndum en í Frakklandi
Nær allir fjarkennarar voru prestar um aldamótin 1900
Í umræðum um fræðslulöggjöfina 1907 var rætt um að minnka vægi kristindómsfræðslu í skólum
Almenningslæsi var misútbreitt í Evrópu á fyrri hluta 19. aldar. Hvaða staðhæfing lýsir þessu best?
Almenningslæsi var útbreiddast í iðnvæddustu ríkjunum, einkum í Bretlandi
Almenningslæsi var útbreiddast í sveitahéruðum í sunnanverðu Frakklandi
Almenningslæsi var útbreiddast í lúterskum löndum í norðanverðri Evrópu
Almenningslæsi var útbreiddast í stórborgum í mið-Evrópu
Nýskólastefnan var umbótahreyfing í menntamálum á Íslandi sem kom fram á millistríðsárunum. Hvað einkenndi þessa hreyfingu helst?
Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að viðhalda mun í kennslufyrirkomulagi milli skóla í sveitum og þéttbýli
Hún lagði áherslu á leitarnám í anda John Dewey
Hún lagði ríka áherslu á eðlismun kynjanna í umfjöllun um skólamál
Hún var undir sterkum áhrifum frá Durkheim og lagði þar með áherslu á breytt og miðlægt hlutverk kennara í samfélaginu
Hver þessara fullyrðinga er RÖNG?
Prestar og foreldrar léku lykilhlutverk við uppfræðslu barna á síðari hluta 18. aldar
Á 19. öld voru fleiri barnaskólar á Íslandi en víðast hvar í norðanverðri Evrópu
Heimafræðsla var grundvöllur barnafræðslu hér á landi þar til á síðari hluta 19. aldar
Þegar lög um barnafræðslu voru sett árið 1907 voru barnaskólar á allflestum þéttbýlisstöðum hér á landi
Hvaða eftirfarandi kenningarbrot er í samræmi við hugmyndir Meads?
Þegar barnið hefur lært að hlýða, lærir það að vera félagslegt
Barnið verður ekki félagsvera með námi. Það verður að vera félagsvera til að læra
Barnið verður félagslegt með því að fylgjast með fjölmiðlum
Börn fæðast sem félagsverur
Að koma betur til móts við menntunarþarfir stúlkna var eitt af því sem átti að breyta með fræðslulögunum 1946. Því marki átti m.a. að ná með því að:
Efla samskóla pilta og stúlkna frekar en sérskóla kynjanna
Námsefni beggja kynja væri hið sama, a.m.k. í skyldunámi
Stúlkur fengju að öllu leyti sama rétt til menntaskólanáms og piltar
Efla sérskóla þar sem einungis stúlkur ættu rétt til náms
Með lögum árið 1880 var námsefni aukið við skilyrði til fermingar. Þetta voru kröfur um:
Skrift og reikning
Landafræði
Íslandssögu
Trúabragðafræði
Í íslenska bændasamfélaginu á seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu skipti almennt miklu máli þegar verið var að leggja mat á líf kvenna:
Að þær hefðu náð að verða leiðtogar yfir eigin lífi
Að þær hefðu náð að sinna skyldum sínum og axla þá ábyrgð sem fylgdi kvennahlutverkinu
Að þær hefðu náð að velja sér starfsvettvang og sinna áhugamálum þar sem þær gátu orðið besta eintakið af sjálfum sér
Að þær hefðu ferðast og séð heiminn
Hver eftirfarandi fullyrðinga um kennarastéttina á við rök að styðjast?
Kennaranám var allt frá stofnun kennaraskólans 1907 vinsælt meðal kvenna
Á fyrri hluta 20. Aldar voru nær allir kennarar í kaupstaðaskólunum karlar
Fyrst eftir að kennaranám færðist á háskólastig um 1970 fækkaði konum en körlum fjölgaði í kennaranámi
Á tímabilinu 1910-1930 voru nær allar konur í kennarastétt giftar
Hver þessara setninga samræmist kenningu Meads um þróun leikja hjá börnum
regluleik öðlast börn fyrstu þjálfun sína í að leika af fingrum fram
Á síðara stigi leiks, sem nefnist regluleikur, leika börn sér að reglum samfélagsins
Fyrra stig leikja felst í því að börn reyna á þolrif foreldra með óhlýðni
Í hlutverkaleik þjálfast börn í að setja sig í spor annarra
Hver af eftirfarandi staæhæfingu samræmist hugmyndum Deweys um siðferðilegt uppeldi?
Siðareglur ber að skoða sem tilgátur sem sérhver kynslóð verður að sannprófa
Siðferði lærist einkum af fordæmi foreldra, kennara og annarra uppeldisaðila
Siðareglur eru hluti af meðfæddri siðgæðisvitund
Siðareglur er rétt eins og vísindalegar tilgátur einungis unnt að sannprófa með tilraunum
Hver af eftirfarandi staðhæfingum samræmist kenningum Mead?
Börn læra siðareglur út frá fordæmum kennarans
Kornabarnið tekur einungis mið af eigin þörfum en ekki af umhverfi sínu
Einstaklingurinn áttar sig smám saman í gegnum einstakar staðreyndir, sem hann sannreynir í lífinu, að hann lifir í samfélagi sem er óháð vilja hans
Viðbrögð og atlæti frumuppalanda eiga þátt í myndun sjálfsins frá blautu barnsbeini
Hvaða eftirfarandi kenningabrot er í samræmi við hugmyndir G.H. Meads?
börn fæðast sem félagsverur
barnið verður félagslegt með því að fylgjast með fjölmiðlum
barnið verður að vera orðið félagslegt til að geta lært
þegar barnið hefur lært að hlýa, lærir það að vera félagslegt.
Hver eftirtalinna fullyrðinga er RÖNG?
lög um fræðslu barna frá 1907 breyttu í reynd frekar litlu um skólahald hér á landi
það var ekki fyrr en með lögum frá 1936 að skólaskylda náði til 7 ára barna. Fram að því voru börn ekki skólaskyld fyrr en þau voru 10 ára
á fyrri hluta 20.aldar var mikill munur var á lengd skóla í sveit og þéttbýli
Með lögum um fræðslu barna frá 1907 var komið föstum skólum í öllum fræðsluhéröðum hér á landi
Hver þessara setninga samræmist kenningum Bourdieus um habitus?
Habitus er hugtak Bourdieus um heimahaga eða þær aðstæður sem lífverur þrífast best við
Habitus er hugtak Bourdieus yfir vandaðan og vel grundaðan menningarlegan smekk
Habitus er forskriftir að hegðun, skynjun og umhugsun sem hafa runnið okkur í merg og bein
Bourdieus lagði áherslu á einstaklingsbundinn habitus fremur en félagslegan
Hver erftirfarandi setninga á best við um hugtakið "menningarauður"?
Grunnur menningarauðs er yfirleitt lagður á æskuheimili
Allir íslendingar eiga menningarauð sem felst í bókmenntastarfi þjóðarinnar
Menningarauður myndast við að einstaklingur kaupir sér bækur, listaverk og aðrar menningarafurðir
Með fjárhagsauð er hægt að kaupa menningarauð
Prestar og foreldrar léku lykilhlutverk við uppfræðslu barna á síðari hluta 18.aldar
Heimafræðsla var grundvöllur barnafræðslu hér á landi þar til síðari hluta 19.aldar
Þegar lög um barnafræðslu voru sett árið 1907 voru barnaskólar í öllum kaupstöðum hér á landi
Á 19. öld voru fleiri barnaskólar á íslandi en víðast hvar annarstaðar í norðanverðri Evrópu
Dewey sagði að félagslegt taumhald væri:
Dewey sagði að félagslegt taumhald réðist af ævinlega af ytri kringumstæðum enda gæti hópur ekki haft félagslegt taumhald á sjáfum sér
Dewey sagði að félagslegt taumahld í skóla réðist af heildar aðstæðum sem "börn" ættu hlutldeild í og sem þeir væru samvirkir eða saverkandi hlutur af
Dewey sagði að félagslegt taumhald í skóla væri á ábyrgð kennara og nemendur gætu ekki átt hlutdeild í því
Dewey sagði að félagsæegt taumhald í skóla réðist eingöngu af þeim skilgreindu hlutverkum sem nemendur og kennarar eru í
Hver erftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningu Durkehims um vélræna og lífræna samheldin?
Lífræn samheldni fylgdi aukinni verkaskiptingu í samfélaginu
Lífræn samheldni kom til sögunnar með internetinu
Fræðsluátak 18. aldara á íslandi stefndi að því að greiða fyrir:
tvíhliða miðlun almenning og yfirvalda til almennings
einhliða miðlun frá Guði og yfirvöldum til almennings
tvíhliða miðlun milli fólks, t.d. í sendibréfum
einhliða miðlum frá yfirvöldum til presta og embættismanna
Hver af eftirfarandi staðhæfingu samræmist hugmyndum Dewey um siðferðilegt uppeldi:
siðareglur er rétt eins og vísindalegar tilgátur einungis unnt að sannprófa með tilraunum
siðareglur eru hluti af meðfæddri siðgæðisvitund
siðareglur ber að skoða með tilgátur sem sérhver kynslóð verður að sannprófa
siðferði lærist einkum af fordæmi foreldra, kennara og annarra uppeldisaðila
Ólíkir möguleikar kynjanna til náms hér á landi á fyrri hluta 19. aldar birtust meðal annar í því:
að skriftarkunnátta var lakari meðal stúlkna en drengja
að fermingarundirbúningur drengja var lengri en stúlkna
að til undantekinga heyrði að konur kynnu kverið
að tilskipanir um fræðslu barna gerðu ekki ráð fyrir að stúlkur lærðu að lesa
Hver eftirtalinna fullyrðinga er hluti af kenningum Durkheims?
verka og hlutverkaskipting í gamla samfélaginu var ógegnsæ vegna skorts á samgöngum og upplýsingamiðlun
með aukinni verkaskiptingu verður vaxandi þörf á markvissu uppeldi til félagslegrar samheldni
aukin trúrækni er skýr vísbending um siðrof í samfélaginu
siðferði lærist með því að prófa sig áfram í praktískum samskiptum og umræðum
Kant áleit:
að skortur á upplýsingum í hans tíð væri helsta ástæða þess að almenningur reyndi ekki að hafa vit fyrir sér sjálfur
að harðstjórn valdhafanna í hans tíð kæmi í veg fyrir að almenningur reyndi að hafa vit fyrir sér sjálfur
að kjarkur og einurð til að steypa valdhöunum af stóli væri það sem þyrfti til að almenningur í hans tíð gæti haft vit fyrir sér sjálfur
að kjarkur og einurð væri það eina sem almenningur þyrfti til að geta haft vit fyrir sér sjálft
Hver eftirtalinna fullyrðinga er í samræmi við vettvangshugtak Bourdieus?
menningarvettvangar hafa fullt sjálfræði gagnvart valdavettvangi
á vettvangi keppa menn um gæði sem þeir eru sammála um að séu mikilvæg
ekki er um vettvang að ræða nema þar séu allir jafn réttháir
hvar sem folk kemur saman er um vettvang að ræða
Hver eftirfarandi fullyrðinga er hluti af kenningum durkheims um sjálfsvíg?
sjálfsvíg eru sérstaklega algeng á tímum félagslegrar og menningarlegrar upplausnar
sjálfsvíg eru fátíð í samfélögum þar sem einstaklingshyggja er ráðandi
sjálfsvíg eru algengari meðal kaþólikka en mótmælenda
tíðni sjálfsvíga sýna hversu mikla útbreiðslu geðsjúkdóma hafa í tilteknu samfélagi
Almenningslæsi var misútbreitt í Evrópu á fyrri hluta 19. aldar. Hvar var það útbreiddast?
Almennigslæsi var útbreiddast í sveitahéruðum í sunnanverðu Frakklandi
Almenningslæsi var útbreitddast í lútherskum löndum í norðanveðri Evrópu