Isl403

Description

Kaflapróf af netinu sett á minniskort
Eyjólfur Hanness
Flashcards by Eyjólfur Hanness, updated more than 1 year ago
Eyjólfur Hanness
Created by Eyjólfur Hanness over 10 years ago
1668
0

Resource summary

Question Answer
Jón Arason biskup að Hólum var einnig skáld. Tvö helgikvæða hans voru prentuð af Guðbrandi Þorlákssyni stuttu eftir siðaskipti
Prentun á Íslandi hófst fyrst að marki á dögum Guðbrands Þorlákssonar
Fyrstu íslensku sálmarnir voru taldir lélegur kveðskapur. Guðbrandur Þorláksson biskup vildi bæta sálmakveðskap. Hann lagði fyrst og fremst áherslu á að bragreglum yrði fylgt og gott málfar notað
Guðbrandur Þorláksson var mikilvirkur við bókaútgáfu. Vísnabók hans kom út 1612. Helsta skáld þeirrar bókar var Einar Sigurðsson
Sálmabók frá 16. öld hefur oft verið tekin til marks um það sem einna verst hefur verið ort á íslensku. Sá sem þýddi þessa sálma hét Gísli Jónsson
Rétt fyrir siðaskipti kom Nýja testamentið út á íslensku í þýðingu Odds Gottskálskssonar
Grallarinn var messusöngbók
Crymogæa er fræðirit um Ísland eftir Arngrím lærða
Á hverjum jólum syngja Íslendingar trúarkvæði eftir Einar Sigurðsson. Viðlag þess er: ,,Með vísnasöng ég vögguna þína hræri" en kvæðið heitir Kvæði af stallinum Christi
Í lok 16. aldar skrifaði Oddur Einarsson biskup Íslandslýsingu þar sem meðal annars er fjallað um dansleiki. Bók hans er talin vera ein besta heimild sem til er um land og þjóð á þessum tíma
Lýrísk kvæði byggja einkum á tilfinningum. Eikarlundurinn og Blómið í garðinum eru talin lýrísk kvæði og hið síðarnefnda er ástarkvæði manns til konu sinnar. Skáldið hét Staðarhóls-Páll
Vikivaki er bragarháttur eða dansleikur
,,Svo kveður mann hver þá morgnar/mæddur í raunum sínum." Þetta er stef úr vísum Fiðlu-Bjarnar en hann lýsir í fjórum erindum hvernig raunamæddur maður upplifir líf sitt
Jón Ólafsson Indíafari skrifaði ævisögu sína 1661 á gamals aldri. Jón segir m.a. frá ferðum sínum til Danmerkur og Indlands.
Ævisaga Jóns er m.a. góð heimild um líf venjulegra hermanna um borð í skipum Danakonungs
Ferðabækur urðu vinsælar á 17. öld vegna þess að Íslendingar vildu afla sér fróðleiks um ókunn lönd
Ritið Sjónarspil lifandi skepna, manna, dýra, fugla og fiska sem út kom á 17. öld var þýtt yfir á íslensku úr erlendu máli
Í húslestrarbókum eða postillum er texti Biblíunnar skýrður og hugleiddur
Tímabil það sem nefnt hefur verið upplýsingaröld í íslenskri sögu er frá 1770 - 1830
Að baki upplýsingar lá ný hugsun og lögð var áhersla á skynsemi, þekkingu og fræðslu
Í Ferðabók Eggerts og Bjarna er í fyrsta sinn fjallað um alla þætti náttúru Íslands
Höfuðkvæði Eggerts Ólafssonar og eitt merkasta kvæði upplýsingar er Búnaðarbálkur
Eggert hafði mikinn áhuga á að garðjurtir og nytjagrös væru betur nýtt. Þetta birtist vel í kvæði sem hann kallar Sælgætið í þessu landi
Atli eftir Björn Halldórsson í Sauðlauksdal er fræðirit fyrir bændur
Atli, fræðirit fyrir bændur er eftir Björn Halldórsson í Sauðlauksdal
Jón Steingrímsson (1728-91) er þekktastur fyrir Eldritið en þar lýsir hann Skaftáreldum sem hófust 1783. Í Eldritinu fer saman náttúrulegur áhugi og guðfræðilegar skýringar.
Fyrsta íslenska tímaritið var prentað í Hrappsey og bar titilinn Islandske Maaneds Tidender
Fyrsta íslenska tímaritið var prentað í Hrappsey
Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað árið 1816. Tímarit þess hefur komið út síðan 1827 og heitir Skírnir
Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað árið 1816
Skírnir kom út árið 1827
Ármann á Alþingi var tímarit
Jón Þorláksson á Bægisá er þekktastur fyrir þýðingar sínar. Stærstu verk hans á því sviði eru eftir Alexander Pope og John Milton. Þau heita Paradísarmissir og Tilraun um manninn
Bækurnar Paradísarmissir og Tilraun um manninn þýddi Jón Þorláksson á Bægisá
Ísalands óhamingju verður allt að vopni! eldur úr iðrum þess, ár úr fjöllum breiðum byggðum eyða. Bjarna Thorarensen ort um Baldvin Einarsson.
Fyrstu öruggu heimildirnar um leiklistariðkun á Íslandi tengjast skólahaldi
Sigurður Pétursson (1759-1827) skrifaði leikrit fyrir skólapilta
Kveðskapur Vatnsenda-Rósu er fyrst og fremst um ástina
Hrappseyjarprentsmiðja var flutt að Leirárgörðum
Sá sem gaf út Klausturpóstinn og Sumargjöf handa börnum hét Magnús Stephensen
Leikritið Narfi er eftir Sigurð Pétursson
Eymdaróður er fyrsti hluti Búnaðarbálks
Upplýsingarmenn álitu að skáldskapur ætti að uppfræða fólk
Henrik Steffens kynnti rómantíkina í fyrirlestrum í Kaupmannahöfn á árunum 1800-1810
Henrik Steffens sagði að allt í náttúrunni væri hluti af andlegri einingu
Í nýklassísisma var gengið út frá því að listaverk væru háð klassískum fyrirmyndum
Nýklassísk skáld og listamenn leituðu fyrirmynda hjá Grikkjum
Hjá rómantískum skáldum skiptir fegurð náttúrunnar mestu máli
Náttúrusýn rómantískra skálda var í beinni andstöðu við náttúrusýn upplýsingar
Í rómantík átti að nota ímyndunaraflið til að skilja innsta eðli náttúrunnar
Í kvæðinu Íslandi dýrkar Bjarni Thorarensen hrikaleika náttúru Íslands
Bjarni Thorarensen taldi hörkuna byggja upp þá sterku
Í Sigrúnarljóðum Bjarna Thorarensen er ástin eilíf
Í erfiljóðum Bjarna Thorarensen er áhersla á hið sérkennilega í fari hins látna
Júlíbyltingin 1830 leiddi til kröfu um endurreisn Alþingis
Fjölnir var heiti á Óðni
Kunsmärchen merkir listarævintýri og voru sjálfstæð höfundarverk
Tímaritið Fjölnir kom fyrst út 1835
Meðal markmiða í inngangsorðum Fjölnismanna voru nytsemi, fegurð, sannleikur og siðsemi
Samkvæmt inngangsorðum Fjölnis var fegurðin ekki hvað síst fólgin í málinu
Sveinbjörn Egilsson sótti í þýðingum sínum fyrirmyndir um málfar til fornbókmenntanna og alþýðlegs talmáls eins og það var best talað
Meðal algengs efnis í tímaritinu Fjölni voru greinar um stafsetningu
Einn Fjölmismanna var menntaður sem prestur. Hann hét Tómas Sæmundsson
Í Íslandi eftir Jónas Hallgrímsson verður söguöldin hin eina sanna viðmiðun
Jón Sigurðsson deildi við Fjölnismenn um staðsetningu endurreists Alþingis
Meðal þýðinga Jónasar var rit um stjörnufræði
Fyrsta íslenska smásagan hét Grasaferð
Með rómantískum skáldskap fjölgaði persónugervingum
Í ættjarðarljóðum Jónasar Hallgrímssonar eru gjarnan notaðir erlendir bragarhættir
Fjölnismenn gagnrýndu rímur meðal annars fyrir merkingarlítil orð
Fjölnismenn sögðu Eggert Ólafsson hafa vakið dug með þjóðinni
Í stíl H. C. Andersen skrifaði Jónas Hallgrímsson listræn ævintýri
Í þýðingum Jónasar Hallgrímssonar á ljóðum Heines er gjarnan skipt um bragarhátt kvæðisins
Fyrsta skáldsagan, sem kom út á prenti á íslensku, hét Piltur og stúlka
Skáldsagan hlaut fyrst viðurkenningu í Evrópu á 18. öld
Útilegumennirnir var heiti á leikriti
"Hann vildi, svo fátt eitt sé talið, gera kort af Þingvöllum, koma upp minnisvarða um Ingólf Arnarson, stofna forngripasafn lagfæra kvenbúninginn, nýta hverahita, leggja vatnsveitu, gera Laugardalinn að útivistarsvæði..." Um hvern er rætt? Sigurð Guðmundsson
Í íslenskum leikritum var mest áberandi efni fram á 20. öld þjóðsögur
Þeir voru kallaðir þjóðskáld: Matthías Jochumsson, Benedikt Gröndal og Steingrímur Thorsteinsson
Ævisaga Benedikts Gröndal heitir Dægradvöl
Um hvern er rætt? Fáir ortu jafn mörg söguljóð, sem byggðust á sögum og sögnum frá fyrri öldum. Hann orti um íslensk náttúruöfl, dul þeirra, glæsileika eða hrikaleik. Hann starfaði m. a. í dönsku utanríkisþjónustunni. Grím Thomsen
Hann dó ungur, var þunglyndur og átti vingott við Bakkus. Hann var af Norð-Austurlandi. Þetta á við um Kristján Jónsson
Hann bjó lengstan hluta ævi sinnar í Skagafirði við kröpp kjör en var vinsælt skáld og skar fallega út í tré. Bólu-Hjálmar
Hann var skáld og stjórnmálamaður og vildi veg einstaklingsins sem mestan og setja landið í samband við alþjóðlegar menntir. Þessi maður var Hannes Hafstein
Hann var vinsælt skáld sem orti bæði ádeiluljóð og hugljúf ljóð um íslenska náttúru eða ástina. Hann gagnrýndi kirkjuna og gaf út vinsæla ljóðabók sem hlaut nafnið Þyrnar. Hann hét Þorsteinn Erlingsson
Steingrímur Thorsteinsson þýddi m. a. Þúsund og eina nótt
Tímarit raunsæismanna hét Verðandi
Hann var áhugamaður um söngmennt og vildi efla hana með þjóð sinni. Hann aðstoðaði m. a. við útgáfu sönghefta með erlendum og innlendum lögum. Þessi maður var Steingrímur Thorsteinsson
Einn þessara höfunda skrifaði dýrasögur á 19. öld Þorgils gjallandi
Einn þessara höfunda er þekktur fyrir að skrifa smásögur á 19. öld Gestur Pálsson
Einn af þýðendum á 19.öld Steingrímur Thorsteinsson
Skáldsagnahöfundur á 19. öld Jón Thoroddsen
Leikritaskáld á 19. öld Matthías Jochumsson
Show full summary Hide full summary

Similar

Social Influence
smita089
American West - Key Dates
Rachel I-J
Korean Grammar Basics
Eunha Seo
P2 Radioactivity and Stars
dfreeman
Graphing Inequalities
Selam H
GCSE AQA Chemistry Atomic Structure and Bonding
Joseph Tedds
An Inspector Calls: Sheila Birling
Rattan Bhorjee
GCSE French - The Environment
Abby B
MATTERS OF LIFE AND DEATH - UNIT 1, SECTION 2 - RELIGIOUS STUDIES GCSE EDEXCEL
Khadijah Mohammed
The Circulatory System
Shane Buckley
TISSUE TYPES
Missi Shoup