Ökupróf Stór Ökutæki

Description

Ökupróf fyrir Stór Ökutæki. SÖ próf. Þetta próf er ætlað til þess að hjálpa nemendum að læra fyrir prófið. Endilega passið ykkur á spurningum eða svörum sem eru gerð til þess að villa fyrir.
bab loo
Quiz by bab loo, updated more than 1 year ago
bab loo
Created by bab loo about 4 years ago
487
0

Resource summary

Question 1

Question
Hvað er heppilegt að athuga/gera að loknum akstri?
Answer
  • Fylla á eldsneytisgeymi
  • Þrífa bifreiðina utan og innan
  • Skrá niður það sem hugsanlega þyrfti að gera við og koma því í viðeigandi farveg

Question 2

Question
Bifreið sem er skráð 3.400 kg að leyfðri heildarþyngd og fyrir 9 farþega er
Answer
  • hópbifreið I
  • hópbifreið II
  • fólksbifreið.

Question 3

Question
Hve mörg eru álestratímabil vegna þungaskatts stórra vörubíla?
Answer
  • Tímabilin eru 2
  • Tímabilin eru 4
  • Tímabilin eru 6

Question 4

Question
Þegar vörubifreið er dreginn með dautt á hreyfli?
Answer
  • Má aka á allt að 50 km. hraða ef dregið er með stöng
  • Þarf bifreiðin sem dregur að vera skráð til að draga þessa þyngd
  • Verður að hafa gírkassa í hálfa-gírnum

Question 5

Question
Hvaða áhrif á stýrieiginleika í beygjum (sérstaklega í hálku) hefur það ef vörubílinn er með tvo afturöxla?
Answer
  • Bifreiðin leitast frekar við að halda beinni stefnu, frekar en bifreið á einum afturöxli
  • Bifreiðinn sækir frekar inn í beygjuna
  • Breytir engu um hvort öxlar eru 1 eða 2

Question 6

Question
Hvaða mæli í mælaborðinu horfum við fyrst á, eftir að mótor er gangsettur?
Answer
  • Loftmæli
  • Smurþrýstingsmæli
  • Hitamæli

Question 7

Question
Hvers vegna eru hafðar þungatakmarkanir á vegum?
Answer
  • Til að skapa vinnu fyrir vegaeftirlitsmenn
  • Til að auka endingu vega og draga úr hættu á skemdum á þeim
  • Til að auka tekjur ríkissjóðs með sektargreiðslum

Question 8

Question
Við gírskiptingu í stórum bifreiðum eru oft tvö aðskilin skiptisvið. Um slíka skiptingu gildir að
Answer
  • háa sviðið er notað þegar ekið er við eðlilegar aðstæður án mikils farmþunga
  • háa sviðið er eingöngu notað þegar snúningshraðamælir er kominn yfir 1.500 sn/min.
  • lága sviðið er að jafnaði notað þegar bifreiðin er tekin af stað

Question 9

Question
Við eld í flokki B sem er í eldfimum vökvum s.s. bensíni, olíu eða feiti er hentugt að nota
Answer
  • vatnsslökkvitæki
  • duftslökkvitæki
  • kolsýrutæki

Question 10

Question
Hvað skrifar ökumaður við upphaf vinnudags á skráningarblað ökuritans?
Answer
  • Staðinn sem akstri lýkur
  • Dagsetningu og stöðu kílómetramælis
  • Skráir ekna vegalengd dagsins

Question 11

Question
Umferðarmerki þetta sýnir
Answer
  • að skilyrðislaus stöðvunarskylda er áður en ekið er inn á vegamót
  • að aðeins skuli stoppa ef vegsýn er slæm
  • að aðeins þurfi að stoppa ef önnur bifreið er nærri.

Question 12

Question
Þetta merki er sett við vegi þar sem
Answer
  • leyfileg heildarþyngd ökutækja er takmarkuð
  • akstur bannaður fyrir ökutæki sem vegur 8 tonn að leyfilegri heildarþyngd
  • akstur bannaður fyrir ökutæki sem vegur meira en 8 tonn að leyfilegri heildarþyngd.

Question 13

Question
Þetta merki táknar meðal annars að fram undan er
Answer
  • hættuleg vegamót þar sem búast má við umferð frá hægri
  • vegamót þar sem er lítil hætta vegna þess að umferðin hefur forgang á veginum
  • vegamót þar sem umferð frá hliðarvegi hefur forgang.

Question 14

Question
Þetta umferðarmerki táknar
Answer
  • að bannað er að leggja þeim megin vegar sem merkið er
  • að ökumaður má stöðva bifreið til að hleypa einhverjum inn
  • að bann gildir frá merki til næstu vegamóta nema annað komi fram á undirmerki.

Question 15

Question
Þetta merki vísar á
Answer
  • sjúkraskýli
  • læknavakt
  • lyfjaverslun

Question 16

Question
Þetta merki varar við hættu fram undan. Hætta getur skapast vegna þess
Answer
  • að malarvegur tekur við af malbiki
  • að hæðarmunur er á milli malbiks og vegaxlar
  • að ökumaður getur misst vald á bifreið við vegöxl.

Question 17

Question
Þetta merki varar við hættu fram undan. Hættan er fólgin í
Answer
  • að malarvegur tekur við af malbiki
  • að vegur endar eftir 200 metra
  • að hætta er á steinkasti undan ökutækjum.

Question 18

Question
Um Ölfusárbrú má aka ökutæki
Answer
  • sem er 4 metrar að lengd
  • klukkan 9 að kvöldi
  • sem er 2.5 m á breidd.

Question 19

Question
Þessi vegmerking segir ökumanni
Answer
  • að bannað er að aka fólksbifreiðum á akrein lengst til hægri
  • að fram undan ættu hægfara ökutæki að nota akreinina lengst til hægri
  • að umferð er á móti á einni akrein.

Question 20

Question
Þú kemur að þessu ljósi sem logar eitt sér á umferðarljósum en það táknar
Answer
  • að ljósin séu biluð
  • að rautt ljós komi næst
  • að nema skuli staðar ef unnt er.

Question 21

Question
Lögreglumaðurinn, sem snýr að hvíta bílnum, stjórnar umferð. Hver má aka sína leið (einn eða fleiri)?
Answer
  • Ökumaður á bíl A.
  • Ökumaður á bíl B.
  • Ökumaður á bíl C.

Question 22

Question
Í hvaða röð eiga bílarnir að fara yfir gatnamótin?
Answer
  • D-B-C-A
  • D-C-A-B
  • C-D-A-B

Question 23

Question
Hvað er rétt við þessar aðstæður?
Answer
  • Ökumaður A skal víkja fyrir C.
  • Ökumaður C skal víkja fyrir B.
  • Ökumaður B skal víkja fyrir bæði A og C.

Question 24

Question
Hvaða bifreið(um) er ólöglega lagt?
Answer
  • A
  • B
  • C

Question 25

Question
Gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk.
Answer
  • Þegar gult ljós blikkar á móti ökumanni við gangbraut verður hann að bíða þótt enginn sé á gangbrautinni.
  • Ökumaður skal bíða eftir gangandi vegfarendum sem fara þvert yfir akbrautina sem hann beygir inn á.
  • Ökumaður skal bíða eftir hjólreiðafólki sem fer þvert yfir akbrautina sem hann beygir inn á.

Question 26

Question
Bifreiðagjald ákvarðast af
Answer
  • eknum kílómetrum
  • leyfðri heildarþyngd bifreiðar
  • eigin þyngd bifreiðar.

Question 27

Question
Hver eða hverjar af eftirfarandi fullyrðingum eru réttar um viðurlög við umferðarlagabrotum?
Answer
  • Sá sem er tekinn á 110 km hraða þar sem hámarkshraði er 50 km er sviptur ökuréttindum tímabundið.
  • Punktar fyrir brot falla niður eftir tvö ár.
  • 12 punktar á þriggja ára tímabili leiða til sviptingar ökuréttinda.

Question 28

Question
Hraðahindranir eru settar á vegi í þéttbýli til þess að
Answer
  • fækka þar slysum
  • tryggja að ökumenn geti ekki ekið hraðar en á leyfilegum hámarkshraða
  • ökumenn velji frekar aðrar leiðir.

Question 29

Question
Opinber skráning umferðarslysa
Answer
  • er á verksviði Samgöngustofu
  • er í höndum tryggingarfélaga
  • er eingöngu skráning á umferðarslysum með meiðslum.

Question 30

Question
Hver (ein eða fleiri) af þessum fullyrðingum um heyrnarskynjun er sönn?
Answer
  • Heyrnarlausir fá ekki ökuréttindi.
  • Mikilvægt er að heyra hljóð frá umhverfinu í akstri.
  • Vanir ökumenn gera fleiri villur í akstri ef heyrn þeirra er skert eða trufluð.

Question 31

Question
Hver (ein eða fleiri) af þessum fullyrðingum um viðbragðstímann er sönn?
Answer
  • Viðbragðstími ökumanna er að meðaltali 0,9 sekúndur.
  • Viðbragðsvegalengdin eykst með auknum hraða.
  • Meiri tími fer í skynjun en úrvinnslu skynboðanna.

Question 32

Question
Börn í umferðinni
Answer
  • hafa verri sjón en þeir fullorðnu
  • vanmeta oft stærð hluta í umferðinni svo sem bíla
  • hafa oftast takmarkaða yfirsýn í umferðinni.

Question 33

Question
Vélin getur ofhitnað ef
Answer
  • Vökva vantar á kælikerfið
  • Rafall er bilaður
  • vatnslás er bilaður

Question 34

Question
Kvikni viðvörunarljós fyrir hemlakerfi getur orsökin verið
Answer
  • að hemlavökvinn sé of heitur
  • að leki sé kominn í hemlakerfi
  • að hemlaklossar séu of slitnir.

Question 35

Question
Barn, yngra en 3 ára, má ekki, án viðeigandi öryggis- og verndarbúnaðar, vera farþegi
Answer
  • í fólksbifreið
  • í sendi- og vörubifreið
  • í hópbifreið.

Question 36

Question
Efnahvarfi í útblásturskerfi bifreiðar er þannig gerður
Answer
  • að hann breytir eitruðum lofttegundum í skaðlaus efni
  • að hann kemur í stað venjulegs hljóðdeyfis
  • að hann breytir CO2 í skaðlaust efni.

Question 37

Question
Hver eða hverjar af þessum tryggingum teljast til frjálsra trygginga?
Answer
  • Kaskótrygging (húftrygging).
  • Bílrúðutrygging.
  • Slysatrygging ökumanns.

Question 38

Question
Hemlunarvegalengd bifreiðar fer meðal annars
Answer
  • eftir hraða hennar þegar hemlun hefst
  • eftir því hvort hún er með fram- eða afturhjóladrifi
  • eftir yfirborði vegar.

Question 39

Question
Þegar nauðsynlegt er að yfirgefa bifreið vegna bilunar við vegbrún til dæmis á vegöxl þarf
Answer
  • að kveikja hættuljós
  • að koma bifreið eins langt frá umferðinni og unnt er
  • að hafa aðalljós kveikt.

Question 40

Question
Hver víkur fyrir hverjum?
Answer
  • Bíll A víkur fyrir bíl B
  • Bíll C víkur fyrir bíl A
  • Bíll D víkur fyrir bílum A og B

Question 41

Question
Þetta umferðarmerki táknar
Answer
  • merkta gangbraut á vegi
  • fjölda bifreiða sem leggja má í stæði
  • hvernig bifreiðar skuli snúa í stæði

Question 42

Question
Varnarakstur felst meðal annars í að
Answer
  • aka alltaf hægt
  • aka ekki umfram eigin getu
  • vera viðbúinn mistökum annarra

Question 43

Question
Hvað ber þér að gera verðir þú þess áskynja að ökumaður ætli að aka undir áhrifum áfengis?
Answer
  • Reyna að stöðva ökumanninn
  • Kalla til lögreglu ef þörf krefur
  • Aðhafast ekkert, þér kemur þetta ekki við

Question 44

Question
Hröðum akstri fylgir
Answer
  • umtalsverður tímasparnaður
  • betra jafnvægi og líðan ökumanns
  • aukin slysahætta

Question 45

Question
Við hvaða aðstæður er helst að finna þetta umferðarmerki?
Answer
  • Þar sem unnið er við lagningu slitlags
  • Þar sem ekið er af bundnu slitlagi inn á malarveg
  • Þar sem hætta er á grjótkasti frá ökutækjum

Question 46

Question
Óheimilt er að aka vélknúnum ökutækjum
Answer
  • utan merktra vega og vegslóða á hálendinu
  • í vistgötum
  • á merktum reiðvegum

Question 47

Question
Einkenni losts eru
Answer
  • hægur og veikur púls
  • sjúklingur verður kaldsveittur
  • hraður og veikur púls

Question 48

Question
Ökutæki telst hafa verið lagt þegar
Answer
  • ökumaður bíður eftir farþega í bifreið sinni
  • ökumaður hleypir út farþega og ekur síðan af stað
  • ökumaður affermir bifreið og ekur síðan af stað

Question 49

Question
Þegar gengið er frá bíl
Answer
  • á að hafa hann í lægsta gír
  • þarf ekki að setja handbremsu á
  • skal ökumaðurinn læsa bílnum og ganga frá verðmætum hlutum

Question 50

Question
Kaskótrygging ökutækis bætir tjón sem
Answer
  • notkun viðkomandi ökutækis veldur öðrum
  • verður á eigin bíl og aðrar tryggingar bæta ekki
  • verður til dæmis vegna útafaksturs og veltu

Question 51

Question
Hvað táknar þetta umferðarmerki?
Answer
  • Umferð á hliðarvegi veitir forgang
  • Umferð á hliðarvegi á forgang
  • Sá sem ekur framhjá merkinu er á aðalbraut

Question 52

Question
Um bílbelti gildir að
Answer
  • farþegar í aftursæti bifreiðar þurfa ekki að nota bílbelti
  • ökumaður er ábyrgur fyrir bílbeltanotkun farþega undir 15 ára aldri
  • farþegum er skylt að nota bílbelti

Question 53

Question
Um ljósabúnað. Hái ljósgeislinn lýsir upp hindrun eigi skemur en í
Answer
  • 30-40 metra fjarlægð
  • 50-80 metra fjarlægð
  • 100-130 metra fjarlægð

Question 54

Question
Ef kviknar í bifreið út frá bensíni er hægt að kæfa eldinn með
Answer
  • vatni
  • teppi
  • handslökkvitæki

Question 55

Question
Hvaða ökutæki eða ökutækjum ber að stöðva samkvæmt fyrirmælum lögreglumannsins?
Answer
  • Bíll A
  • Bíll B
  • Bíll C

Question 56

Question
Um þetta umferðarmerki gildir eftirfarandi:
Answer
  • Ekki má stöðva ökutæki handan þess
  • Kantsteinn eða brún akbrautar er oft málaður með gulri heilli línu
  • Ökumaður má nema staðar vegna annarrar umferðar

Question 57

Question
Við akstur með eftirvagn
Answer
  • má aka á allt að 90 kílómetra hraða á klukkustund á bundnu slitlagi utan þéttbýlis miðað við bestu mögulegu aðstæður
  • þarf oft að nota sérstaka hliðarspegla
  • þarf að hafa í huga að hann getur tekið á sig hliðarvind

Question 58

Question
Við hvaða hættu varar þetta umferðarmerki?
Answer
  • Lausagöngu búfjár
  • Rekstrarleið nautgripa liggur þvert á veg
  • Reiðleið hestamanna
Show full summary Hide full summary

Similar

Propriété
st-vila
A maioridade penal deve ser aprovada porque
Carolina Bartholi
The history of a crime
Georgette Plematia
21 Random IT questions
Eden Goddard
IB Biology Topic 4 Genetics (SL)
R S
MATTERS OF LIFE AND DEATH - UNIT 1, SECTION 2 - RELIGIOUS STUDIES GCSE EDEXCEL
Khadijah Mohammed
Of Mice and Men Plot Overview
Landon Valencia
Denary, Binary and Hexadecimal
Samuel Leonard
LINEA DEL TIEMPO DE LA EVOLUCION DEL MICROSCOPIO
valentina brizio
Système circulatoire sanguin
Martin Fortier
CST Module 6a
Jane Foltz